Afgreiðslutími

OPIÐ Í DAG: 10:00 - 18:30

OPNUNARTÍMI
þriðjudagur 10:00 - 18:30
miðvikudagur 10:00 - 18:30
fimmtudagur 10:00 - 18:30
föstudagur 10:00 - 18:30
laugardagur 11:00 - 18:00
sunnudagur 12:00 - 17:00
mánudagur 10:00 - 18:30

NETVERSLUN OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN

Language switcher
LogoLogo
Mitt uppáhalds

Óskalisti

loading
Cart

Karfan þín er tóm

Karfa

Það er ekkert í körfunni!

Gjafakort Kringlunnar

Gjafakort Kringlunnar er frábær gjöf sem hentar öllum og eins má benda á að starfsmenn greiða ekki skatt af gjafakortum Kringlunnar líkt og gildir fyrir bankakort. Gjafakort Kringlunnar gildir í öllum verslunum, Bónus, Hagkaup, veitingastöðum, Kúmen, í Borgarleikhúsi, hjá pílustaðnum Oche, Sambíóum og hjá þjónustuaðilum í Kringlunni að Vínbúðinni undanskildri.

Rafræn gjafakort er einnig hægt að nota til kaupa í netverslun Kringlunnar á kringlan.is

gjafakort

Gjafir til starfsfólks?

Forsvarsmenn fyrirtækja sem huga að gjöfum fyrir starfsfólk geta verið vissir um að gjafakort Kringlunnar hittir í mark - starfsfólkið velur sína gjöf sjálft í fjölbreyttu úrvali verslana. Pantanir skulu berast til þjónustuver Kringlunnar, kringlan@kringlan.is þar sem tekið er fram nafn og kennitala fyrirtækis ásamt fjölda korta og upphæðir. Taka þarf fram hvort afgreiða skuli rafræn gjafakort til að senda í tölvupósti/ sms eða hvort kortin verði afgreidd hvert og eitt í gjafaumslagi.

Gjafakortið gildir í öllum verslunum Kringlunnar nema Vínbúðinni. Innistæðu kortsins er ekki hægt að leysa út fyrir reiðufé né leggja inn í banka.

Gildistími gjafakorta er 4 ár frá kaupdegi. Ef þú ert með kortið í símanum þínum sérðu alltaf innstæðuna sem er eftir á kortinu. Ef þú ert með plastkort getur þú skoðað stöðuna hér á vefnum en einnig er einfalt að sjá stöðuna með því að nota QR kóða á bakhlið kortsins .

gjafakort
Nýtt!

Gjafakort í spilastokki

Þú getur fengið afhent fallegt gjafakort í glæsilegum spilastokki.  Frábær gjöf sem er tvær gjafir í einni.  Þú færð gjafakort í spilastokki hér á vefnum og hægt er að senda hvert sem er,  eða fengið þau afgreidd í þjónustuveri Kringlunnar.  Viðtakandi hleður gjafakortið í símann sinn og notar spilastokkinn fyrir góðar samverustundir..

Verð fyrir spilastokk er 890 kr.

Rafrænt gjafakort

Gjöf sem gleður

Gjafakort Kringlunnar eru rafræn. Gjafakortið fer í "veskið" í símanum hjá viðkomandi. Kortið er einnig hægt að fá á Þjónustuborði Kringlunnar með QR kóða og fallegum umbúðum fyrir gjöf. Handhafi kortsins skannar QR kóðann og fær gjafakortið beint í símann, eða nýtir QR kóðann í einum af verslunum Kringlunnar.

Kringlan

Kaupa gjafakort

Rafrænt gjafakort Kringlunnar er hægt að kaupa hér á vefnum . Þú færð síðan sendan kóða sem hægt er að nota til að senda gjafakortið beint í snjallveskið í símanum þínum eða til þess sem þú vilt gleðja.

Gjafakort

Gjöf sem gleður

Gjafakort Kringlunnar færðu í þjónustuveri Kringlunnar eða hér á vefnum, Þú getur látið senda hvert á land sem er eða einfaldlega sótt í þjónustuver.

Kringlan

Skoða stöðu á rafrænu gjafakorti

Stöðuna á rafrænum gjafakortum er hægt að skoða hér á síðunni

Kringlan

Skoða stöðu á eldri gerð gjafakorta

Stöðuna á plast gjafakortum er hægt að skoða hér